Auður Jónsdóttir hefur nú aðsetur á Ísafirði, nánar tiltekið rétt fyrir ofan gamla Sjallann á Austurvegi 1. Hún er að fínpússa sína fimmtu skáldssögu sem Forlagið gefur út í haust. Bókin hefur hlotið titilinn Vetrarsól.
Auður ætlar að halda námskeið í ritlist á Ísafirði í september og fara jafnvel með það til Reykjavíkur með haustinu í einhvers konar póstmódernístískri æfingu því svipað námskeið kemur einmitt fyrir í Vetrarsól. Auður stefnir að því að skreppa til Danmerkur í nóvember að sinna þarlendri útgáfu á Tryggðarpanti og síðan áfram til vetrarsetu í Barcelona í desember.