Sérfræðingar að sunnan (SAS)

Hin árlega bókmenntahátíð Vestanvindar verður haldin í Menningarmiðstöðinni Edinborg, laugardaginn 4. október kl. 16.00. Aðgangur ókeypis. Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson fjalla um verk sín, þá einkum og sér í lagi þau sem tengjast Vestfjörðum á einn eða annan hátt.

Mynd: Ágúst AtlasonMynd: Ágúst Atlason

Auður hefur skrifað fimm skáldsögur: Stjórnlaus lukka (1998), Annað líf (2000), Fólkið í kjallaranum (2004), Tryggðarpantur (2006) og Vetrarsól (2008). Hún hefur einnig sent frá sér tvær barnabækur, Algjört frelsi (2001) sem hún skrifaði í samvinnu við Þórarin Leifsson myndskreyti, og Skrýtnastur er maður sjálfur (2002), sem er ævisaga Halldórs Laxness fyrir börn. Sú bók hlaut viðurkenningu Upplýsingar, félags íslenskra bókasafnsfræðinga, sem vel unnið fræðirit fyrir börn og fyrir hana var Auður tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita og bóka almenns efnis.
Hún hefur einnig þrisvar verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki skáldverka, en verðlaunin hlaut hún 2004 fyrir Fólkið í kjallaranum. Fyrir þá bók var hún einnig tilnefnd af Íslands hálfu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2006.



Þórarinn Leifsson hefur myndskreytt bækur, bókakápur og blaðagreinar. Meðal verka hans eru myndskreytingar við röð ævintýra eftir H.C. Andersen sem kom út víða á Norðurlöndum haustið 2004. Hann var meðhöfundur að barnasögunni Algjört frelsi ásamt Auði Jónsdóttur. Leyndarmálið hans pabba er fyrsta skáldsaga hans handa börnum en hún kemur út í Þýskalandi á næstu dögum og í Danmörku næsta haust.

Í suðurenda á 2. , Rögnvaldarsalur. Laugardaginn 4. október kl. 16.00.

Comments

Post new comment