- Auður á forsíðu bókablaðs Politiken
- Silja vill kvikmynda Vetrarsól Auðar
- Einstæðar mæður skrifa leikrit fyrir Borgarleikhúsið
- Auður Jónsdóttir valin "hirðskáld" Borgarleikhússins
- Viðtal á vísi
- Vetrarsól að klára þriðja upplag
- Vetrasól gefin út í Þýsklalandi
- Vetrarsól - dómar
- Vetrarsól - Páll og Kolbrún í Kiljunni
- Vetrarsól - komin út
Auður Jónsdóttir valin "hirðskáld" Borgarleikhússins

Á félagsfundi LR í Borgarleikhúsinu í dag var tilkynnt um val nýstofnaðs Leikritunarsjóðs, en sjóðurinn mun á ári hverju velja eitt leikskáld til þess að starf með félaginu til eins árs í senn. Fyrst til að hreppa hnossið var Auður Jónsdóttir rithöfundur.
Auður Jónsdóttir, rithöfundur, var í dag valin leikskáld
Borgarleikhússins árið 2009 úr stórum hópi umsækjenda. Nýstofnaður
Leikritunarsjóður mun hér eftir velja eitt leikskáld á ári hverju til
starfa með félaginu og var Auður sú fyrsta sem hreppti hnossið. Hún mun
því næsta árið starfa innan veggja hússins og skrifa verk sem stefnt er
að því að sviðsetja. Þetta var tilkynnt á opnum félagsfundi í
Borgarleikhúsinu í dag að viðstöddu fjölmenni. Á fundinum tók Vigdís
Finnbogadóttir heiðursfélagi, fyrrverandi leikhússtjóri LR og
fyrrverandi forseti Íslands við árnaðaróskum félagsins en hún var á
dögunum heiðruð af Alþjóða leiklistarsambandinu (International Theatre
Institute) sem einn sendiherra leiklistar í heiminum. Sveinn Einarsson
kynnti doktarsritgerð sína og opnuð var margmiðlunarsýning um Jón
Sigurbjörnsson, einn ástsælasta leikara landsin og einn af
heiðurlistamönnum LR.
Sjá nánar á vef Borgarleikhússins og Vísi.is
Comments
Post new comment