Blogs

Viðtal á vísi

Í nýrri skáldsögu Auðar Jónsdóttur, Vetrarsól, teflir hún saman ólíkum heimum og varpar fram spurningum um lífsgildi, lífsviðhorf og lífsblekkingu.

Vísir hafði samband við Auði og spurði hana út í rithöfundastarfið.
„Í dag á ég erfitt með að hugsa mér lífið án þess að vera rithöfundur. Að minnsta kosti er ég eins sátt í mínu starfi og framast er unnt." „Auðvitað fylgja því hæðir og lægðir. Verstu lægðirnar eru sennilega tímabilin þegar hugmyndirnar skreppa úr hendi eða þegar maður situr fyrir framan áttatíu þéttskrifaðar tölvusíður og ákveður allt í einu að það sé nauðsynlegt að byrja upp á nýtt."

Meira á Visir.is

Vetrarsól að klára þriðja upplag

Vetrarsól hefur hlotið afar góðar viðtökur í jólabókaflóðinu og
þriðja upplag er að seljast upp.

Dómar hafa verið frábærir og núna síðast í gær lýsti Gerður Kristný því yfir í Mannamáli á Stöð2 að bókin væri mjög “Auðsk” og skemmtilegasta bók hennar til þessa.

Vetrasól gefin út í Þýsklalandi

Nýútkomin bók Auðar Jónsdóttur,  Vetrarsól, vakti mikla athygli erlendra bókaútgefanda á kaupstefnunni í Frankfurt í síðasta mánuði. Einkum sýndu Þjóðverjar gífurlegan áhuga, enda verður Ísland heiðursgestur á kaupstefnunni árið 2011. Tilboðum í útgáfuréttinn rigndi inn frá Þýskalandi þegar eftir sýninguna og að lokum varð að efna til uppboðs. Eftir töluverðar sviptingar var það risinn Random House sem hreppti hnossið. Hyggjast þeir gefa bókina út og dreifa í Þýskalandi, Austurríki og Sviss strax á næsta ári.  

Sjá einnig umfjöllun á Visir.is

Vetrarsól - dómar

„ ... saga Auðar er einhver sú besta sem ég hef lesið þetta haustið ... Vetrarsól er samnefni að því leyti að sagan skín skært í skammdeginu. Frásagnarmátinn er einnig afar heillandi og stíllinn; ja, tja, hvað skal segja - dásamlegur!“
Eiríkur Bergmann / www.eirikur.eyjan.is
=> Sjá bloggfærslu Eiríks

„Þarna er grín og gleði ... ofboðslega gaman að lesa þetta ... skemmtilegasta bók Auðar.“
Gerður Kristný / Mannamál, Stöð 2

Vetrarsól - komin út

Í nýrri skáldsögu sinni, Vetrarsól, teflir Auður Jónsdóttir saman ólíkum heimum og varpar fram spurningum um lífsgildi, lífsviðhorf og lífsblekkingu – rétt eins og í hinum rómuðu verðlaunabókum Tryggðarpanti og Fólkinu í kjallaranum. Með óvæntum söguþræði og frumlegri sýn á tilveruna gefur Vetrarsól fyrri sögum höfundar ekkert eftir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Arndísi Theódórsdóttur, hún sást síðast við Korpúlfsstaði síðastliðinn föstudag …

Vetrarsól - langir skuggar

VetrarsólVetrarsólNokkrar undarlegar tilviljanir komu í ljós eftir að nýjasta skáldssaga Auðar Jónsdóttur, Vetrarsól, fór í prentun. Bókin er væntanleg í búðir innan nokkurra vikna.

  • Ein aðalpersónan í Vetrarsól heitir Arndís Theódórsdóttir. Leigjendur í íbúð höfundar í Barcelona heita Ragnheiður Theódórsdóttir og Mardís Heimisdóttir. Þetta er tilviljun þar sem nöfn sögupersóna voru komin til áður en samið var við leigjendur. Líkt og aðalsöguhetjurnar í hluta skáldsögunnar eru leigjendurnir rúmlega tvítugar skólastúdínur að læra spænsku. Þær búa auk þess í sama hverfi.
  • Í sögunni er ein persóna bókarinnar veðurteppt á Ísafirði. Höfundur dvaldi á Vestfjörðum langt fram á haust í lokavinnslu bókarinnar, síðasta próförk tafðist í nokkra daga vegna þess að flug lá niðri.
  • Í bókinni segir: Gjaldþrota manneskjur hafa engu að tapa. Þessi orð ættu að hughreysta einhverja á þessum síðustu og verstu tímum.

Í bók með frægu fólki - 24 stundir

Elogio de la palabraElogio de la palabraAuður Jónsdóttir rithöfundur er í góðum félagsskap Nóbelsverðlaunahafa, vísindamanna og kóngafólks í bók sem er nýkomin út í Sevilla á Spáni. Bókin heitir Lof orðanna (Elogio de la palabra). Rithöfundar, listamenn og heimsþekkt fólk í þágu menntunar og menningar og inniheldur texta eftir hundrað rithöfunda alls staðar að úr heiminum. Þar á meðal eru heimsfrægir höfundar á borð við José Saramago og Paulo Coelho og José Luis Rodrígues Zapatero, forsætisráðherra Spánar.

Sérfræðingar að sunnan (SAS)

Hin árlega bókmenntahátíð Vestanvindar verður haldin í Menningarmiðstöðinni Edinborg, laugardaginn 4. október kl. 16.00. Aðgangur ókeypis. Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson fjalla um verk sín, þá einkum og sér í lagi þau sem tengjast Vestfjörðum á einn eða annan hátt.

Auður fann fítonskraftinn - viðtal

Auður Jónsdóttir rithöfundur hefur verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fjórgang, og einu sinni hlotið, fyrir bókina Fólkið í kjallaranum. Auður er fædd árið 1973, ólst upp í Mosfellsdal, barn þeirra Jóns Gunnars Ottóssonar og Sigríðar Halldórsdóttur, sem aftur er dóttir Halldórs Laxness.

Syndicate content