Vetrasól gefin út í Þýsklalandi

Nýútkomin bók Auðar Jónsdóttur,  Vetrarsól, vakti mikla athygli erlendra bókaútgefanda á kaupstefnunni í Frankfurt í síðasta mánuði. Einkum sýndu Þjóðverjar gífurlegan áhuga, enda verður Ísland heiðursgestur á kaupstefnunni árið 2011. Tilboðum í útgáfuréttinn rigndi inn frá Þýskalandi þegar eftir sýninguna og að lokum varð að efna til uppboðs. Eftir töluverðar sviptingar var það risinn Random House sem hreppti hnossið. Hyggjast þeir gefa bókina út og dreifa í Þýskalandi, Austurríki og Sviss strax á næsta ári.  

Sjá einnig umfjöllun á Visir.is

Vetrarsól - dómar

„Þetta er mjög grípandi saga og allt í senn frumleg, yndisleg, spennandi og bráðfyndin ... góð uppbygging og frábær persónusköpun.
Vetrarsól er í hópi bestu bóka Auðar að mínu mati, ef ekki sú besta.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan

Vetrarsól - komin út

Í nýrri skáldsögu sinni, Vetrarsól, teflir Auður Jónsdóttir saman ólíkum heimum og varpar fram spurningum um lífsgildi, lífsviðhorf og lífsblekkingu – rétt eins og í hinum rómuðu verðlaunabókum Tryggðarpanti og Fólkinu í kjallaranum. Með óvæntum söguþræði og frumlegri sýn á tilveruna gefur Vetrarsól fyrri sögum höfundar ekkert eftir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Arndísi Theódórsdóttur, hún sást síðast við Korpúlfsstaði síðastliðinn föstudag …

Vetrarsól - langir skuggar

VetrarsólVetrarsólNokkrar undarlegar tilviljanir komu í ljós eftir að nýjasta skáldssaga Auðar Jónsdóttur, Vetrarsól, fór í prentun. Bókin er væntanleg í búðir innan nokkurra vikna.

  • Ein aðalpersónan í Vetrarsól heitir Arndís Theódórsdóttir. Leigjendur í íbúð höfundar í Barcelona heita Ragnheiður Theódórsdóttir og Mardís Heimisdóttir. Þetta er tilviljun þar sem nöfn sögupersóna voru komin til áður en samið var við leigjendur. Líkt og aðalsöguhetjurnar í hluta skáldsögunnar eru leigjendurnir rúmlega tvítugar skólastúdínur að læra spænsku. Þær búa auk þess í sama hverfi.
  • Í sögunni er ein persóna bókarinnar veðurteppt á Ísafirði. Höfundur dvaldi á Vestfjörðum langt fram á haust í lokavinnslu bókarinnar, síðasta próförk tafðist í nokkra daga vegna þess að flug lá niðri.
  • Í bókinni segir: Gjaldþrota manneskjur hafa engu að tapa. Þessi orð ættu að hughreysta einhverja á þessum síðustu og verstu tímum.

Í bók með frægu fólki - 24 stundir

Elogio de la palabraElogio de la palabraAuður Jónsdóttir rithöfundur er í góðum félagsskap Nóbelsverðlaunahafa, vísindamanna og kóngafólks í bók sem er nýkomin út í Sevilla á Spáni. Bókin heitir Lof orðanna (Elogio de la palabra). Rithöfundar, listamenn og heimsþekkt fólk í þágu menntunar og menningar og inniheldur texta eftir hundrað rithöfunda alls staðar að úr heiminum. Þar á meðal eru heimsfrægir höfundar á borð við José Saramago og Paulo Coelho og José Luis Rodrígues Zapatero, forsætisráðherra Spánar.

Sérfræðingar að sunnan (SAS)

Hin árlega bókmenntahátíð Vestanvindar verður haldin í Menningarmiðstöðinni Edinborg, laugardaginn 4. október kl. 16.00. Aðgangur ókeypis. Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson fjalla um verk sín, þá einkum og sér í lagi þau sem tengjast Vestfjörðum á einn eða annan hátt.

Auður fann fítonskraftinn - viðtal

Auður Jónsdóttir rithöfundur hefur verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fjórgang, og einu sinni hlotið, fyrir bókina Fólkið í kjallaranum. Auður er fædd árið 1973, ólst upp í Mosfellsdal, barn þeirra Jóns Gunnars Ottóssonar og Sigríðar Halldórsdóttur, sem aftur er dóttir Halldórs Laxness.

Af pönnukökubakstri

Síðunni hefur borist eftirfarandi skilaboð frá bróður Auðar, Ara Klængi Jónssyni. Smellið á tengilinn og hlustið.

http://slytherin.hex.is/usercontent/tts/ragga/20080724/3b6301b706588b9bb...

Vetrarsól í vændum

Auður Jónsdóttir hefur nú aðsetur á Ísafirði, nánar tiltekið rétt fyrir ofan gamla Sjallann á Austurvegi 1. Hún er að fínpússa sína fimmtu skáldssögu sem Forlagið gefur út í haust. Bókin hefur hlotið titilinn Vetrarsól.

Auður ætlar að halda námskeið í ritlist á Ísafirði í september og fara jafnvel með það til Reykjavíkur með haustinu í einhvers konar póstmódernístískri æfingu því svipað námskeið kemur einmitt fyrir í Vetrarsól. Auður stefnir að því að skreppa til Danmerkur í nóvember að sinna þarlendri útgáfu á Tryggðarpanti og síðan áfram til vetrarsetu í Barcelona í desember.

Syndicate content