- Auður á forsíðu bókablaðs Politiken
- Silja vill kvikmynda Vetrarsól Auðar
- Einstæðar mæður skrifa leikrit fyrir Borgarleikhúsið
- Auður Jónsdóttir valin "hirðskáld" Borgarleikhússins
- Viðtal á vísi
- Vetrarsól að klára þriðja upplag
- Vetrasól gefin út í Þýsklalandi
- Vetrarsól - dómar
- Vetrarsól - Páll og Kolbrún í Kiljunni
- Vetrarsól - komin út
Vetrarsól - langir skuggar
Submitted by admin on Fri, 10/10/2008 - 21:11
VetrarsólNokkrar undarlegar tilviljanir komu í ljós eftir að nýjasta skáldssaga Auðar Jónsdóttur, Vetrarsól, fór í prentun. Bókin er væntanleg í búðir innan nokkurra vikna.
- Ein aðalpersónan í Vetrarsól heitir Arndís Theódórsdóttir. Leigjendur í íbúð höfundar í Barcelona heita Ragnheiður Theódórsdóttir og Mardís Heimisdóttir. Þetta er tilviljun þar sem nöfn sögupersóna voru komin til áður en samið var við leigjendur. Líkt og aðalsöguhetjurnar í hluta skáldsögunnar eru leigjendurnir rúmlega tvítugar skólastúdínur að læra spænsku. Þær búa auk þess í sama hverfi.
- Í sögunni er ein persóna bókarinnar veðurteppt á Ísafirði. Höfundur dvaldi á Vestfjörðum langt fram á haust í lokavinnslu bókarinnar, síðasta próförk tafðist í nokkra daga vegna þess að flug lá niðri.
- Í bókinni segir: Gjaldþrota manneskjur hafa engu að tapa. Þessi orð ættu að hughreysta einhverja á þessum síðustu og verstu tímum.
Comments
Post new comment